Alveg úti að skíta. En...Blönni er mættur á svæðið og pizzurnar góðu sem bóndinn, vinur hans Blönna, borðar ekki. Mikið var ég glöð að sjá hann aftur á sínum stað. Hann á bara að vera þarna. Maður verður að láta minna sig á mikilvægi peninga einhvern veginn. Nú svo eru það þessi frábæru egg sem hoppa til og frá og eldurinn til þess að minna mann á að borða ekki hráan mat. Það getur nefnilega verið hættulegt. Einnig er mjög mikilvægt að vita hvað það er sem maður leggur sér til munns. Það borgar sig að vita sem flest um hlutina annars er voðinn vís.
Ég var að borða hamborgara áðan og mig langar til þess að borða meira núna. Nú er ég svöng Blönni og langar í pizzurnar sem eru þarna hjá þér. Má bjóða yður sneið herra?