Svo er bara að embreisa vikuna sem kemur blaðskellandi á mann með sumardeginum fyrsta. Svei mér þá. Ég er að hugsa um að halda vel upp á þann dag. Sérstaklega vegna þess að nú þarf ég ekki að hafa áhyggjur af vetrardekkjunum, löggunni og öllu bruðlinu sem fylgir bíl. Jibbí kæj jeij. Lifi Anti-Bruðlarinn Blönni. Nú er bara að plana eitthvað skemmtilegt. Til dæmis setjast á góðan bekk og telja alla bílana á nagladekkjum. Það gæti verið áhugavert. Ég gæti uppgötvað dulda hæfileika eins og þá að geta getið mér til um hversu margir naglar eru komnir inn í dekkið, hversu margir eru farnir og hversu margir eru enn við lýði. Fólk gæti haft samband við mig og fengið að vita hvort það ætti að hafa fyrir því að draga bara naglana út eða skipta! Örugglega fínn bissness. Ó ég er svo frjó.
Síðan eru það allar bækurnar sem ég á eftir að lesa. Þær eru þó nokkrar. Ég þarf alltaf að lesa svo margar í einu. Breytist bráðum í lesvél sem bilar alltaf á síðustu síðum hverrar bókar. Það vantar ekki bruðlið þar. En kannski er það vegna þess að ég er búin að vera svo dugleg að elda "Blönna-mat"
Þetta er svona....fegruð útgáfa af Blönnaglundri. Fann ekki rétta mynd af réttinum góða. En það gerir ekkert til því að í þessum heimi er allt gert til þess að fegra hlutina svo fólk komist ekki að hinu sanna. Það er meiraðsegja til nafn yfir það: Lýðræði.
Afskaplega fallegt, gott og gilt, íslenskt og hvað eina.
Ekki meir um þaa.
Mæli með: vöfflum með ljónasírópi og sprautu-rjóma
Mæli á móti: vatnskrönum sem segja dripp dripp dripp og gera mann brjálaðan