Ég er í leit að rólegu og góðu umhverfi til þess að blogga í. Þessi blái litur er einstaklega fallegur þykir mér og ætla að fengsjúía bloggið mitt.
Innri ró. Nú er það markmiðið. Svo finna sér markmið. Svo er ég alvarlega að hugsa um að stúdera Sun Tzu ef mannleg samskipti af þeim toga sem ég er að upplifa þessa dagana eiga eftir að skjóta reglulegar upp kollinum.
Það er alla vega kominn tími á hann Sunna þar sem að hann, ásamt fleiri góðum skræðum, hefur tekið þátt í að leika stafla af bókum á náttborðinu mínu.
Skohh: Innri ró; lesa bók; lesa Sun Tzu. Svo verð ég uppfull af einhverri furðulegri 2500 ára speki. Það ætla ég með í vinnuna og ræða gaumgæfilega við hugtakameistarann svo við skiljum alveg örugglega ekki hvor aðra.
Hvernig er með bókavikuna sem ég er búin að panta? Þar sem allir íslenskir ríkisborgarar eiga að vera heima og lesa bækur í eina viku. Senda síðan skýrslu svona eins og skattaskýrsluna. Ég hef aldrei tíma til þess að lesa. Ég vil skapa mér tíma til þess að lesa. Ég ítreka hér með þá ósk mína að það verði bókafilleríis-vika í kringum Jónasar Hallgrímssonar-daginn. Það væri til þess að heiðra minningu mannsins, þokkalega. Frí í vinnunni goes without saying. Ég er handviss um að veikindadögum myndi snarfækka ef maður ætti von á bókavikunni sinni. Nú ef ekki það þá taka upp kaþólska trú svo maður fái fleiri dýrlingafrídaga aftur inn í almanakið. Meiri vitleysan að taka upp einhvern mótmælanda sið.
Aldrei frí!