Í morgun þegar ég vaknaði beið glaðningur á gólfinu fyrir neðan ofninn í svefnherberginu. Ég hélt að glugginn hefði lekið um nóttina en þegar betur var að gáð kom þessi agnarsmáa og fíngerða buna út úr ofninum í ljós. Hann lekur hreinlega. Það er bara gat! Ekki meðfram röri eða neitt heldur bara gat á ofninum!.
Vatnið er ekki heitt og engar skemmdir eru sjáanlegar. Það er eins og ofninn hafi tekið upp á þessu einhverntíma snemma í morgun. Ég hringdi í pabba sem ekki svaraði og ég átti æilegt bágt. En svo hringdi elsku karlinn, heyrði ekki í símanum sínum nýja, er eitthvað voða flottur samlokusími sem frúin færði honum. Hann sagði æ æ æ, að hann kæmist ekki til mín fyrr en á fimmtudaginn. En hann sagði mér að vera róleg og halda áfram að læra. Setja bara skál undir: "Og leyfðu drengnum að sulla svolítið í þessu".
Hann spurði hvort ég væri ekki tryggð. Ég er ekki tryggð. Ég er að bíða eftir því og hef verið lengi, að einhver læknir láti tryggingarfélagið fá eitthvað svo ég geti fengið einhvern tryggingarpakka sem ég óskaði eftir. Á meðan er ég ekki tryggð, eða hvað. Djöfuls vitleysa er þetta. Að það velti á lækninum manns hvort maður fái tryggingu í ákv. pakka eður ei! Mér skilst meiraðsegja að minn læknir "sé mjög sein að skila". Frábært.
En ég er í prófalestri og verkefnavinnu. Þetta er auka álag. Ætli maður sé tryggður fyrir slíku hjá LÍN? Heimilisáföllum? Eða á maður yfirleitt að vera á kúlinu: "Ja, ofninn minn sprakk og það var allt út í vatni en ég má ekkert vera að spá í það. Verð bara í vöðlunum upp í rúmi", eða "Ja, mamma dó í bílslsysi í gær en ég er í prófum. Get ekkert verið að pæla í því núna. Verð að ná annars fæ ég ekki námslánin".