Það er meira úrval í Bjánus út'á nesi heldur en í Beyglunni. Mér leiðist alveg afskaplega að fara út í Beyglu að kaupa inn í matinn. Þess vegna er ágæt að fara út á nes. Í dag lenti ég kortaveseni svo ég þurfti að fara tvisvar í Bjánus. Kortið svaraði ekki út á nesi og ég var búin að versla fyrir fúlgur fjár. Þurfti að skila öllu og fara heim og aftur í Bjánus. Oj, og fór í Beygluna. Það var ekkert á við Bjánus-nes. En styttra.
Dagur er að fleygja peningum út um alla íbúð. Frábært uppeldi! Strax farin að bera virðingu fyrir krónunni, eða þannig.
Á
morgun er fyrirlestur sem mig langar að fara á. Brjálaður pönk-heimspekingur. Ef ég er ekki að fara að skauta þá massa ég pössun og skrepp að sjá brjálæðinginn.