Hvað á maður að gera á sunnudögum? Ég nenni varla út úr húsi en ég er búin að hanga hérna nánast alla helgina...verð að láta mér detta eitthvað snjallræði í hug.
Sundbolurinn minn er orðin of ljótur til að fara í sund í honum og ég vil ekki að sonurinn ofkælist...Mig langar samt að nenna einhverju svona hressu dæmi. Til dæmis krafti til að nenna út með snjóþotuna eða ukkað.
Geislaspilarinn er dáinn svo ekki getum við verið með Latabæjar-ball. Ég er komin með ógeð á sjónvarpinu og barnaefni. Ég nenni ekki að tjalda Svíkeatjaldinu og vera þar inni í einhverjum kuðung og láta berja í tjaldið allt að utan...
Voðalega er ég ukkað lummó mamma...
Annars er aðal skemmtunin að fara á Skype og spila bingó við brósa og frænda en Dagur hefur ekki gaman að því. Ég hafði hugsað mér að hafa hann inn í dæminu.