- Sonur minn kær, ekki verða veikur og ekki andsetinn
- Mamma, ekki þú heldur!
- Ég, ekki verða veik, geðveik, stressuð og ekki lenda í neinu veseni.
- Barnsfaðir, vertu þolinmóður og haltu þér á mottunni þegar ég hvæsi á þig
- Þið hin, ekki biðja mig um greiða ég get ekki sagt nei
- Kæra fjölskylda, þetta er hugsanlega næst síðasta önnin mín og ég er að losna undan leiðinlegri bókasafnsfræði. Ég þarf stuðning, nóg að eta og drekka og viljið þið skamma mig ef íbúðin er full hreinleg miðað við það sem er í vændum. Ég er þá ekki að gera skyldu mína við sjálfa mig sem námsmaður.
- Að ég syndi 400 m 3 í viku á meðan á þessu stendur.
Ja nema það sé delux-ferð til útlanda þar sem tærnar fá að vera upp í loft 24-7