Fór til heilsubæjarins og fékk orku í friðsældinni og yndislegheitum móður minnar. Ég á bestu mömmu í heimi. Henni líður svona og svona en það er miklu léttara yfir henni. Ég vona að það endist lengi lengi lengi. Hún er jú að verða sjötug í október. Hún er svo dugleg og ég elska hana svo mikið...ohhh elsku mamma.
Dagur var jafn hamingjusamur og ég. Hann og Kisa finna það alveg á mér hvað mér finnst gott að vera á æskuheimilinu mínu og fíla Akranes í botn. Mig langar stundum til þess að eiga heima þar en ég er ekki viss hvort að það sé skynsamlegt að flytja. No djobs for píbúl læk mí.
Kisa var ekki með í þessari för en hún hefur oft komið þangað. Bjó hjá mömmu um stund þegar ég var í herbergiskitru hjá frænku minni... Ojj...Kisa var að prumpa á mig! Djöfuls fýla öghh...glætan! Ég er að fara að gubba...full mikil ástarjátning fyrir minn smekk skoh.
Mamma var alveg ótrúlega fyndin. Ég held að hún og systir hennar hafi átt að verða rithöfundar. Þær hafa alveg merkilega frásagnargáfu systurnar, þegar kemur að fólki. Mamma sérstaklega því hún litar hlutina með kaldhæðni sem er svo stórkostlega fyndin. Þær taka eftir hlutum sem manni yfirsést. Af hverju í ósköpunum gerðu þær ekki eitthvað?! Systir hennar sagði mér um daginn að það hvarflaði ekki að foreldrum þeirra að koma þeim til mennta. Þær væru nú bara stelpur! (öskr)