Kíkti aðeins í ameríska brjálæðinginn og subbið hans en hélt ekki athygli lengi. Buddha vol. 5 er komin í hús og ég róaðist talsvert við það. Nú vantar mig bara búst, losna við syfjuna og massa bækurnar. En einmitt núna langar mig að gera eftirfarandi og það allt í einu:
- lesa bók
- horfa á góða bíómynd
- hlusta á þátt í tölvunni um Hannah Arendt
- hlusta á Hugh Laurie lesa sögu
- hrista fram úr erminni eitt stykki sjal