miðvikudagur, mars 05, 2008

Sam Amidon



Ótrúlega fallegt lag með gaur sem heitir Sam Amidon, var flutt í Víðsjá í gær. Hann er ukkurskonar ungur þjóðlagagaur og tók plötuna upp hér á landi. Ég ætlaði að kaupa plötuna í dag og hringdi í 12 teina en hún er ekki til. Kannski á morgun sagði ukkur í símanum. Ég á enga peninga en ég ætla að búa þá til svo ég geti spilað hann fyrir vinkonur mínar sem ætla að koma í hitting um helgina.

Mig vantar pössun. Ukkur sem vill passa fallegan snáða sem ég þekki meðan við vinkonurnar hlustum á Sam Amidon og rifjum upp æskuminningar? Ha, Dísa, Bjögga? Freydís, Odda?

Karlinum verður hent út. Hann þarf að spila á tónleikum hvort eð er og getur bara rótað í marga klukkutíma á meðan.

Þarf að fara að mæta í tíma. Við erum að reyna að skilja Spinoza og nauðhyggju hans og hvernig heimurinn er samkvæmt honum.

Að blogga er að lifa

Maður hálf skammast sín fyrir gömlu færslurnar sínar en mér finnst þær þokkalega skrifaðar og þekki ekki þessa manneskju lengur...ætli hún s...