föstudagur, mars 07, 2008
Viðauki
Búin að þvo gluggana að utan fyrir partíið á morgun. Það er náttúrulega nauðsynlegt. Ég og sonurinn fórum út í morgun með sköfu og svampa og gerðum huggulegt. Svo eldaði pabbi grjónagraut og eftir hádegið steinsofnaði ég, svo sofnaði sonurinn, svo vakanði ég og skreið uppí til sonarins og svo vöknuðum við kl. hálf níu Í KVÖLD! Ég gæti farið aftur að sofa en ég er ekki viss um að hann sé spenntur fyrir meiri hvíld. Mikið líkamserfiði sem gluggaþvotturinn og grjónagrauturinn höfðu á okkur mæðginin.
Að blogga er að lifa
Maður hálf skammast sín fyrir gömlu færslurnar sínar en mér finnst þær þokkalega skrifaðar og þekki ekki þessa manneskju lengur...ætli hún s...
-
...halló...á ég að segja eitthvað núna? Já Kárahnjúkavirkjun. Þegar ég keyrði heim úr vinnunni í dag og hlustaði á Spegillinn þá fór ég að g...
-
Maður hálf skammast sín fyrir gömlu færslurnar sínar en mér finnst þær þokkalega skrifaðar og þekki ekki þessa manneskju lengur...ætli hún s...