fimmtudagur, febrúar 13, 2003

...og hérna kemur ða þó lítið C (ein af heimspekilegu vangaveltum vikunnar)...

Ég er búin að vera að melta vikuna. Þetta var einskonar ekkert vika. Ekkert gerðist og engin sagði neitt. Ég sá engar kómískar hliðar á mannlífinu. Vikan leið bara sí svona. Það liggur við að ég lesi Stephen Hawkings aftur til þess að átta mig á hvað tímanum gengur til með þessu. Ekki það að ég botni neitt í skammtafræði heldur er það bara kúl upp á intelektúal lúkkið.

Til þess að útskýra enn frekar þessa viðburðalitlu viku þá er ég búin að gera uppgötvun. Einu sinni fattaði ég það hvernig átti að pissa án þess að það heyrðist. Nú er ég búin að fatta hvernig á að kúka án þess að það sjáist...þ.e. skítaskánin sem situr eftir ef kúkurinn er efnafræðilega manni í óhag og kýs að sitja eftir í skálinni þrátt fyrir marg-endurtekna sturtun. Það er svona eitt og annað sem maður dettur niðr’á í tilbreytingarleysinu.

En þó svo að umhverfið sé rólegt þá er ekki þar með sagt að það sé rólegt inn í manni. Fullt af pælingum hingað og þangað um veröldina. T.d. af hverju hefur Pétur Blöndal ekki komið í sjónvarpið? Hann ber uppi bloggið mitt! Sumir dópa til þess að koma sér í skuldir. Aðrir dópa til þess að koma öðrum í skuldir. Sumir skrifa upp á til þess að aðrir geti dópað. Pétur talar, ég blogga. So what is blogging about? Pésa Blönn.

Sísí er alveg að gera útaf við reiknisdæmið mitt “hvað varðar” jólagjafir Blönna. Samkvæmt mínum upplýsingum þá á hann sex börn og einhver barnabörn. Ef hann gaf bara sjö gjafir (samkvæmt Sísí) þá rekur mann í roga...hvernig deildi hann þessu niður? Vinur kom með snilldar hugmynd. Hann gaf bara börnunum sínum. Hann gaf ekki barnabörnunum því þau eru ekki nógu skyld honum. Það segir mér aftur á móti að hann gaf gjöf með fullt af aukastöfum (deiling) þannig að jólagjafirnar hafa verið í formi hlutabréfs eða einhverju arðbæru. Ef hann á konu þá gaf hann henni ekki neitt því hún er ekkert skyld honum. Hmm....soldið langsótt en samt það má gera mikið úr fullt ekki satt?

Ég ætla samt að viðurkenna að mér finnst nokkuð til í sumu sem hann Blönni segir. Ætla ekki að rekja það hér. Stundum velti ég því fyrir mér hvað myndi gerast í heimspólitíkinni ef hann yrði fjármálaráðherra!!!

Mæli með: Ísköldum stórum bjór og taflborði með hvítum og svörtum köllum á og prufa að tefla eins og Fisher vill að allir tefli.

Mæli með: Að einhver finni upp skákforrit til þess að uppfylla ósk Fishers.

Mæli á móti: Svefni, það er svo leiðinlegt að vakana aftur.

Að blogga er að lifa

Maður hálf skammast sín fyrir gömlu færslurnar sínar en mér finnst þær þokkalega skrifaðar og þekki ekki þessa manneskju lengur...ætli hún s...