Ég er alltaf að fá hugmyndir. Þær hverfa sumar út í fjarskan. Hinar sitja eftir í nefinu á mér.
Manneskjufýlur eru umræðuefni þessa bloggs. Það þýðir að við verðum að skreppa niður í vinnu einu sinni enn. Sumt fólk sem kemur í vinnuna mína lyktar alveg ferlega. Við erum ekki að tala um kommon svitalykt heldur gróðrarstíu af viðbjóði. Súr gömlu kalla- og kellinga fýla. Hvernig er hægt að gera manni þetta? Blævængur tíðkast á Spáni vegna hita. Blævængs er þörf í vinnunni. Osta- fiski- og loðnubræðslufýla eru ilmur samanborið við...þetta...eitthvað...Deyr fólk úr elli? Er það ekki eitthvað annað sem dregur fólk til dauða? Þess eigin viðbjóðslega súrufýluógeð? Ég held að við þurfum að endurskoða hvort fólk deyr úr elli eður....plís teik jor bisniss somver else!
Hausinn fer á fullt. Sérstaklega í ljósi þess að líkamslykt spilar stóran þátt í makavali! Hverskonar þefskyn hefur súrufýlu-fólkið? Mér dettur eitt í hug og það er að herra og frú Súrufýlus eru án lyktarskyns eða með baðhræðslu. Það er ekki óalgent meðal gamalmenna...en það eru ekki bara gamalmenni sem eru að bræða eitthvað annað en loðnu!
Nú ef ekki blævængur þá verð ég bara að fara og læra köfun. Í köfun þarf maður að læra að anda með munninum. Svo get ég látið gamlan draum rætast...sinkronæst svimmíng...nema ég væri ekki í sundlaug heldur með ljóta klemmu á nefinu að störfum. “Gnóðahgn dnagg, vnildum plnasmpmoka?” Fólk segði já við öllum plastpokum af vorkunsemi við holgóma kassadömu. Gætu jafnvel haldið að ég væri dönsk. No more pokproblems. Og ef ég yrði spurð hvað þetta væri á nefinu á mér og ég svaraði því, þá gæfist fólk bara upp á því að hlusta því það skilur ekki orð í holgómadönsku. Ég myndi mæta hinu fullkomna skilningsleysi og vera frjáls úr viðjum heimskrar kassadömu. Því í staðin fyrir að vera heimsk og vond í reikningi að mati viðskiptaóvinarins með öll sín vandamál, þá verð ég óskiljanleg. Draumur allra dama (Dana?).
Mæli með: að allir sem þurfa að vera á kassa og horfa í augun á kúnnanum mínútu áður en kemur að afgreiðslu fari á Al-anon fundi, læri köfun og noti sinkróneraða klemmu.
Mæli á móti: Hræðslu við hreinlæti. Það er allt í lagi að baða sig endrum og sinnum. Umhverfisvænna...fyrir utan líftíman sem hægt er að kaupa með því. Ef bað er ógeð, byrja að reykja. Hver segir að maður þurfi að lykta eins og þorri allt árið um kring?