Bráðavaktarkvööööld! Grét úr mér augun. Þvílíkur unaður þá sjaldan sem maður tárast.
Hvað get ég röflað um í dag? Mér dettur ekkert í hug þegar ég líð Pétursskort. Ég er ekkert að gefast upp á fátæktinni sem er aðal áhugamál mitt en engu að síður þá er vöntun á manninum svo ég tali frábæra stjórnmállýsku.
Settist á tóarann og leit í blað sem ég hef ætlað mér að skoða í heila viku. Ég er svo framtakssöm...Í blaðinu var auglýsing frá Námsflokkum Reykjavíkur og þar komst ég í feitt. Það er anti-bruðlaranámskeið í boði! Kostar reyndar 13 Brynjólfa og einn Nonna eða tvær Ragnheiðar, þrjá Brynjólfa og einn Nonna. Eða eins og í mínu tilfelli 13 þúsund og fimmhundruð þoska! Vandamálið er að það er lauuungu byrjað. Það á að auglýsa svona með stórum stöfum á síðunni hans Blönna. Annars ætti Blönni sjálfur að halda námskeið. Og lokaverkefni okkar nemendanna væri að kaupa banka.
Á heimasíðu Blönna má lesa fyrirlestur sem nefnist Heiðarleikinn er auðlind....yeahh...wright. Ef ég kemst ekki á fátækranámskeið þá verð ég að komast á námskeið þar sem manni er kennt að stela úr búðum og svíkja undan skatti. Svo væri ekki úr vegi að vera skráður íbúi í sömu skattaparadís og Nonni Ól og Björk rafvirkjadóttir.
Ég gerði alveg ótrúlega skömm af mér í fyrra sumar. Kaufti tölvuleik til þess að læra allt um markaðshyggju...CAPITALISM II...skil ekki bofs í þessari peningahungruðu sýndarveröld og hefði betur farið á gott fyllerí. Ég er fólk, fólk er fífl...ef fólk er fífl og ég er fólk þá er ég fífl. Viltu plastpoka?
Endalaus andleysa er þetta Pétur minn.
Að lokum góð og gild kínversk speki sem ég heyrði fyrir mörgum árum:
Ef þú vilt vakna brosandi að morgni sofnaðu þá með herðatré þversum upp í þér að kveldi.