sunnudagur, febrúar 23, 2003

Þreyta og andleysi einkenna þessa helgi. Vinnan göfgar ekki manninn heldur rænir hann orku til þess að gera eitthvað skemmtilegt eins og til dæmis að hugsa oná blað eða blogga. Ég er til í sumarfrí í 3 mánuði núna. Ég hef nóg að gera annað en að vera þreyttust. Svoleiðis bókastaflarnir út um alla íbúð af hálf-lesnum skræðum. Man ekki einu sinni lengur hvar ég er stödd í öllum staflanum. Þarf að byrja upp á nýtt á öllu saman! Þetta er spurning um að láta leggja sig inn á bókasafns-hælið. Það hlýtur að vera til einhverstaðar í Bandaríkjunum. Hæli fyrir fólk sem þarf að fá að lesa í friði fyrir lífinu. Það er allt til í Bandaríkjum. Meiraðsegja brjálaðir Runnar. Það þyrfti kannski að klippa þá niður. Snyrta aðeins...kannski bara eitthvað fyrir ofan háls? Eða kveikja í... svona til þess að minnast einhvers manns sem er í ritræpunni frægu.

Að blogga er að lifa

Maður hálf skammast sín fyrir gömlu færslurnar sínar en mér finnst þær þokkalega skrifaðar og þekki ekki þessa manneskju lengur...ætli hún s...