Braut odd af oflæti mínu og hækkaði ofninn upp í þrjá. Skreið upp í rúm í ullarsokkum og flíspeysu. Svaf svefni hinna ranglátu (skuldarar/fátæklingar) alveg þangað til í morgun. Útvarpið æpir á mig klukkan sjö á morgnanna ef ég skildi vilja heyra fréttirnar klukkan þá. Svo sofna ég aftur þangað til hin klukkan vekur mig til vinnu.
Eftir að hafa setið í vinnunni og fengið fullt af upplýsingum sem ég kæri mig ekkert um að vita (til dæmis að fólk vill ekki poka því það á nóg af þeim út í bíl!) fór ég heim og eldaði Blöndalsgraut sem dugir mér alveg þangað til að ég fer að hata hrísgrjón. Langar samt í ADSL. Ætla að kanna málið. Ég fékk nefnilega góða hugmynd. Fjarlæga Pétur úr veskinu þegar mig langar að bruðla.
Hef ekki verið að fylgjast vel með deiglunni (þ.e. allur fréttaflutningur) því ég er að hugsa...stanslaust um allt og ekkert. Ef maður hugsar of mikið þá fer maður að tvístíga og snúast í hringi. Einhverskonar líkamsrækt séð úr fjarska. Ég er ekki viss um að Muller myndi viðurkenna slíkar hreyfingar.
Heyrði þó að Blairwitch project hafi flogið í fangið á Frakklandsforseta til þess að bjóða honum í darraðadans sem á að fara fram í Austurlöndum fjær en Sjak Sírak hafi afþakkað boðið. Líklega getur hann ekki verið með. Frakkar kláruðu ábyggilega allar kjarnorkusprengjurnar sínar í tilraunum sínum í Indlandshafi á sínum tíma. Þá hættu allir í heiminum að drekka frönsk vín í smá stund. Franskir vínbændur eru sjálfsagt með heygafla í rassinum á Sjakk til þess að minna hann á að útflutningsafurðin gæti verið í hættu ef hann svo mikið sem hlær af bröndurunum hans Mister Bitch Blairwitch
Ég nenni nú ekki að fylgjast með þessu stríðstali. Hef meiri áhyggjur af afleiðingum þess en eins og þorri almennings þá hef ég enn meiri áhyggjur af buddunni. Hvernig ætli buddan komi út í stríðinu? Hækkar bensínverð, hækka strætófargjöld (ef bíllinn deyr)? Fá flóttamenn frá Írak vinnuna við Kárahnjúka? Það er af nógu að taka. Sægur sjór af samfélagshræðslu.