Skrifpúkinn hefur eitthvað látið á sér standa eftir allt hammboltafylleríið. Maður getur orðið dasaður eftir æsinginn. Nú er það bara fyrsti í bömmer. Í dag er dagurinn sem maður situr með sárt ennið eftir að hafa borgað alla þá þjónustu sem maður tekur ekki eftir að maður noti. Til dæmis rafmagnið og hitinn. Í mínu tilfelli er synd að ég skuli borga fyrir einhvern hita. Í hvert sinn sem kólnar og verður vindasamt rýkur hitinn út í kuldann. Eins og það séu einhver not fyrir hann þar!
Meira um fátækt
Pétur Blöndal er í uppáhaldi hjá mér þessa dagana. Reyndar hefur hann verið það lengi. Ég er að hugsa um að verða mér úti um mynd af honum og setja hana í veskið mitt. Hvar er Pétur betur geymdur en nákvæmlega þar? Í hvert sinn sem ég opna veskið og ætla að byrja að bruðla þá er Pétur þar til þess að minna mig á áramótaheitið mitt en það er að ég ætla að vera óttalegur nirfill þetta árið. Læra eitthvað af manninum svo ég geti keypt mér einn banka í lok ársins. Það er nefnilega búið að selja þennan sem ég átti einhverjum körlum út í bæ.
Gott dæmi um hvað Pétur gæti gert fyrir mig: Ef ég ætla að verða alvöru bloggari þá er spurning hvort ég ætti að fá mér ALSD eins og einhver frægur íslenskur poppari myndi orða það. Og af því að ég er svo hrifin af spurningum þá þyrfti ég að horfa á myndina af Pétri og spyrja hvort ég hefði efni á því. Pétur segði samstundis nei. Hann segði mér að skrifa niður í word allt sem ég ætlaði að segja næstu daga og senda síðan allt þvaðrið inn í einu. Hann myndi segja mér að sleppa því að blogga yfir höfuð og jafnvel sleppa því að hafa síma! Sjóða sjö kíló af hrísgrjónum á mánudegi, setja í frysti og skella í örbylgjuna þegar hungrið segði til sín.
Nú svo má náttúrulega gera trúarbrögð úr honum. Stækka myndina og koma henni fyrir á heimagerðu altari með tilheyrandi skrauti. Af hverju trúarbrögð? Jú til þess að hafa ástæðu fyrir að fasta heilu mánuðina og fela þannig fyrir öðrum að maður sé fátækur það þykir svo mikil skömm af því í þessu samfélagi. Maður þyrfti ekki einu sinni að borga fyrir djammið. Það er nú þokkalegt rugl sem yrði í hausnum á manni bara af góðu næringarleysi.
Í upphafi var orðið og orðið var hjá Pétri...hljómar mjög vel.
Kæru fátæklingar, setjum Pétur í veskið en ekki í eitthvað sæti í næstu kosningum